08.11.2009 18:19:53 / 2kvenna
Hæ stelpur
Ég þarf að breyta æfingunni okkar á mánudaginn því að ég er með foreldrafund kl. 20:00. Það verður s.s. útihlaup og mæting er í Breiðholtslaugina kl. 18:30 þar sem við hlaupum, gerum styrktaræfingar og svo geta þær sem vilja farið í pottinn/laugina.
Sjáumst þá,
Kv. Úlla
»
07.11.2009 15:56:11 / 2kvenna
Hæ stelpur
Æfing í Egilshöllinni í dag kl. 17:30 - 19:00 skv. æfingatöflu.
Erum skráðar í Futsalmót:
Lau. 21. nóv. Álftanes - ÍR Álftanesvöllur
Lau. 28. nóv. ÍR - Álftanes Seljaskóli
Svo er jólamót í des. hjá 2.fl.kvenna.
Kv. Úlla
»
03.11.2009 13:52:33 / 2kvenna
Hæ stelpur
Bara láta vita að ég var að skrá 2.fl.kv. Jólamót KRR þann 20. desember - sjá hér til hliðar upplýsingar.
Sjáumst í Egilshöll á miðvikudaginn!
Kv. Úlla
»
02.11.2009 12:35:48 / 2kvenna
Hæ stelpur
Það er leikur á vellinum í dag í æfingatímanum okkar og því fell ég æfinguna niður í dag. Auðvitað er best, ef þið færuð út að hlaupa í dag eða á morgunn og gerðuð styrktaræfingar.
Ca. 3-4 km. hlaup og styrktaræf. 100 maga, 30 bak, 20 armbeygjur (tvær umferðir)
Sjáumst á miðvikudag í Egilshöllinni.
Kv. Úlla
»
30.10.2009 15:06:40 / 2kvenna
Hæ stelpur
Það verður ekki leikur hjá okkur um helgina - útskýri betur á næstu æfingu.
Egilshöllin er upptekin á laugardaginn í æfingatímanum okkar vegna grunnskólamóts svo það verður í staðinn æfing á sunnudag kl. 12:30-14:00 á ÍRvelli. Koma bæði með inni og útiföt.
Vinsamlegast látið vita ef þið komist ekki á æfingu.
Kv. Úlla
»
27.10.2009 19:40:36 / 2kvenna
Það er enn til nokkur stykki af handa- og fótáburði. Kostar 1.700. kr saman.
Þeir sem eru búin að kaupa eiga að leggja inná 2 flokks reikningin og setja nafnið ykkar í skýringu (upplýsingar hér til hliðar) og ná í vörurnar hjá mér.
Tara getur líka komið með þetta til ykkar á æfingu en þá verið þið að vera búin að borga.
Drífa sig svo að selja svo að næsta sala geti farið af stað.
kveðja Svanhvít
»
23.10.2009 16:28:27 / 2kvenna
Hæ stelpur
Æfing á sunnudag á ÍRvelli kl. 12:30-14:00. Koma bæði með inni- og útiföt. Stefnan er að hafa þrek og spil inni en ef eitthvað klikkar varðandi salinn þá förum við út.
Kv. Úlla
»
21.10.2009 15:31:18 / 2kvenna
Hæ stelpur
Við spilum við ÍRdrottningar í kvöld í Egilshöllinni - reynum að vera tilbúnar kl. 18:30 svo við getum notað tímann vel. Ég veit að e-r eru lengi í skólanum... og þá bara eins fljótar og þið getið

....MUNA EFTIR LEGGHLÍFUM!!!!
Kv. Úlla
»
18.10.2009 22:08:01 / 2kvenna
Hæ stelpur
Minni á æfingu - mánudagur 19:30 á ÍRvelli.
Eru örugglega allar búnar að panta krem sem ætla að gera það?
Kv. Úlla
»
17.10.2009 15:54:57 / 2kvenna
Hæ stelpur
Mótinu öllu hefur verið breytt og því birtist ný leikjaröðun fljótlega. Það er s.s. enginn leikur í dag. Mótið hefst líklega ekki fyrr en 31. október. Ég set upplýsingar inn um leið og ég fæ þær
Æfingin í Egilshöll fellur líka niður því að það er mót í höllinni til kl. 19:00. ÍR-völlurinn var líka upptekinn vegna leikja.
Sjáumst á mánudagskvöld.
Kv. Úlla
»
13.10.2009 21:56:39 / 2kvenna
Hæ stelpur
Fyrsti leikur í Haustmóti er á næsta laugardag, 17. október á móti Þrótti.
Mæting kl. 13:30 á ÍRvöll
Leikurinn hefst kl. 14:30.
Hópurinn:
Helga, Tara, Sirrý, Mekkín, Linda, Áslaug, Unnur, Dagný, Eyrún, Elín Þ., María K., Anna Bára, Irena og 2-3 í viðbót þ.á.m. markmaður.
Vinsamlega staðfestu að þú mætir í leikinn.
Kv. Úlla
»
10.10.2009 20:31:15 / 2kvenna
Hæ stelpur
Ætla að hafa æfingu fyrir þær sem komast á morgunn kl. 12:30-14:00 á morgunn - sunnudag. Takið bæði með ykkur
föt og skó til að vera inni og úti. Ef við fáum salinn niðri þá verðum við inni - en það verður bara létt æfing, mest spil.
Ég gat ekki haft æfinguna seinna um daginn því húsið lokar kl. 14:00 og ég náði ekki í neinn til að athuga hvort ég fengi lykil. Æfingin verður því með 3.fl.kv.... en þar eru einhver afföll vegna handboltaleikja.
Sjáumst vonandi sem flestar, annars á mánudagsæfingunni skv. æfingatöflu.
Minni á að panta kremin hjá Svanhvíti

kv. Úlla
»
08.10.2009 15:30:30 / 2kvenna
Hæ stelpur
Æfingin á fimmtudag verður kl. 16:30 á ÍR velli - en ekki eins og æfingataflan segir.
Sjáumst
Úlla
»
08.10.2009 09:16:35 / 2kvenna
Hæ stelpur
Við fengum fótakrem og handaáburð frá Avon á frábæru tilboði.
Selt saman á 1.700 kr. þið fáið 500 kr. fyrir hverja pakkningu sem þið seljið.
Þið þurfið að staðgreiða um leið og þið pantið.
Nú er bara að láta ættingja og vini kaupa af sér.
Þegar þið leggjið inná reikninginn, þurfið þið að setja nafnið á ykkur inná skýringu.
Vörurnar fáið þið hjá mér.
Búið þarf að vera að panta fyrir 14. október
Kveðja Svanhvít
»
06.10.2009 09:34:14 / 2kvenna
Hæ stelpur
Við ákváðum að byrja með æfingar á mán, mið, fim og lau (sleppum þri og fös í bili) og svo koma leikirnir í Haustmótinu (sjá leikjaplan til hliðar) um helgar þannig að við erum ca. 4 sinnum í viku til að byrja með. Vinsamlega kannið strax hvort að þið eruð nokkuð að vinna þeim tíma sem leikur er - og ef svo er þá er mikilvægt að þið fáið að breyta því svo þið getið spilað.
Næsta æfing er því miðvikudaginn 7. okt. í Egilshöllinni eins og sést á æfingatöflunni hér til hliðar. Vinsamlega látið vita ef þið komist ekki.
Kær kveðja, Úlla
»
Síður:
1 2 3